Fyrsta tímabilið - Doujin-tímabilið/Aramary-era
Sound Horizon, einnig þekkt sem SanHora, eða
Gensou Gakudan (幻想楽団 – The Fantasy Band), hefur aðeins einn fastan meðlim:
Revo. Allir hinir meðlimirnir eru gestir sem koma og fara, hvort sem það eru söngvarar, seiyuu eða tónlistarmenn.
Þrátt fyrir að útgáfa Chronicle á Winter Comiket árið 2001 marki upphaf Sound Horizon sem „hljómsveitar“ má segja að það hafi byrjað miklu fyrr, því löngu áður en Sound Horizon „hljómsveitin“ varð til var Revo að setja frumsamda tónlist á netið.
Chronicle, fyrsta platan/fyrsti sögudiskurinn(Story CD), innihélt 9 lög, öll instrumental, en með sögum og ljóðum sem fylgdu með skrifuð í bæklinginn.
Næst kom
Thanatos, á Comiket sumarið 2002, og á þeirri plötu söng söngkonan
Aramary á japönsku með setningum á ensku sem var skotið inn á milli. Þetta markaði upphaf þess sem kalla má „Fantasy Story Music“ hjá Sound Horizon, en það nýtti tónlist, orð og söng til að segja sögu.
Nokkru seinna, á Winter Comiket 2002, kom út þriðji sögudiskurinn,
Lost, en hann sýndi fram á miklar framfarir varðandi upptökugæði. Á honum sungu
Aramary og annar söngvari,
Jimang, sem og
Haruka Shimotsuki sem vann þar í fyrsta sinn með Sound Horizon, og söng meðal annars andann í lampanum í laginu Mahoutsukai Sarabant.
Í maí og ágúst 2003 komu svo út
Pico Magic og
Pico Magic Reloaded, svokallaðir „Pleasure CDs“ sem áttu að leyfa fólki að hlusta á Sound Horizon án þess að draga það inn í flóknar sögur. Þessar tvær plötur innihéldu endurupptökur og endurhljóðblönduð lög af áður útkomnum geisladiskum, sem og nokkur ný lög og preview af lögum af næstu plötu. Á meðan vann
Revo að því að endurgera
Chronicle, og vinna að fjórða sögudisknum,
Elysion.
Chronicle 2nd -1st Story Renewal CD kom svo út í mars 2004, og markaði lok doujin-tímabilsins hjá Sound Horizon. Á þeirri plötu sungu
Aramary,
Jimang, og
Haruka Shimotsuki flestöll lögin.
Sound Horizon fékk plötusamning hjá BELLWOOD RECORDS, og gaf út fyrstu major plötuna,
Elysion ~Prelude to Paradise~, sem innihélt nokkur valin lög frá doujin-tímanum og tvö lög af næsta sögudiski.
Árið 2005 var viðburðaríkt ár. Í febrúar sendi
Revo frá sér „image album“ diskinn
Leviathan sem var byggt á manga með sama nafni eftir Eiji Ohtsuka og Yu Kinutani. Þar komu fram
Aramary og aðrir söngvarar eins og
RIKKI,
Sizzle Ohtaka og
Geila Zilkha.
Fyrsti sögudiskurinn sem gefinn var út frá BELLWOOD RECORDS,
Elysion, einnig nefndur
Elysion ~Paradise Fantasy Story Suite~, kom svo út með tilheyrandi fagnaðarlátum nokkkru síðar. Aðal söngvarar plötunnar voru sem fyrr
Aramary og
Jimang, en Miyoshi Harito söng sópransöng í nokkrum lögum. Fyrstu Story Concert tónleikarnir(tónleikar sem vinna bara með efni úr sögudiskum, einn diskur í senn) voru svo haldnir í Nakano Zero Hall í Tokyo undir nafninu
Elysion ~Rakuen Parade e Youkoso!~. DVD diskurinn með tónleikunum kom svo út í mars 2006.
Í desember 2005 kom svo út næsti „image album“ diskurinn frá
Revo, í þetta sinn upp úr Gunslinger Girl animeinu. Sá hét
Poca Felicità og á honum sungu seiyuus úr animeinu, sem og sópransöngkona.
Rétt eftir útgáfu
Elysion tónleikanna setti
Revo upp bréf á heimasíðu sinni þar sem hann tilkynnti að
Aramary væri að hætta í hljómsveitinni af persónulegum ástæðum, en hann lofaði söng hennar mjög og var það gert líka til að sýna fram á að
Aramary ætlaði að hætta í friði/friðsamlega(engin átök). Með því hófst nýtt tímabil í sögu Sound Horizon.